Landeldi og Ræktunarsamband gera 30 borholu verksamning

Landeldi hf. og Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf. hafa skrifað undir verksamning um borun á 30 sjóholum í Þorlákshöfn sem verða allt að 100 metrar á dýpt. Jafnframt er stefnt á borun á ferskvatnsholum og mæli- og vöktunarholum. Samningurinn tryggir Landeldi hraunsíaðan sjó fyrir allan fyrsta áfanga félagsins. Verktíminn er áætlaður 15 mánuðir og verður borinn Saga notaður til verksins. Verkið hefst á komandi vikum.

Samkvæmt samningi skuldbindur Ræktunarsambandið sig til að fjárfesta í rafmagnspressum og Landeldi að útvega raforku til verksins. Með þessu er olíu skipt út fyrir raforku í borverkinu að stórum hluta, sem er nýjung hér á landi í borun á sjóholum. Samningurinn er einn umhverfisvænasti sinnar tegundar og liður í vegferð beggja fyrirtækja að settu markmiði í umhverfismálum.

 

Guðmundur Á. Böðvarsson, framkvæmdastjóri Ræktunarsambandsins:

„Við höfum þegar borað 20 holur fyrir Landeldi síðan 2020 og samstarfið verið bæði gott og lærdómsríkt. Samningurinn er því eðlilegt framhald til að ná fram sem bestum lærdómi og hagræðingu í borverkinu með tilliti til þarfa laxeldisins. Samningurinn er sá stærsti sem Ræktunarsambandið hefur gert við einstakan aðila í borholum hingað til og kallar á aukin umsvif hjá Ræktunarsambandinu með frekari mannaráðningum.“

Heimir Ingimarsson, jarðfræðingur Landeldis:

„Með þessum samningi tryggir Landeldi sér aðgang að sjó til að rækta um 8 til 10.000 tonn af laxi árlega. Ræktunarsambandið hefur stutt vel við Landeldi síðustu árin og sameiginlega hafa félögin þróað töluverða nýbreytni við hönnun á sjóholum með virkilega góðum árangri. Í þessum stóra samningi munum við færa okkur úr olíudrifnum loftpressum í rafmagns loftpressur sem hefur mikil áhrif á kolefnisfótspor hverrar holu og er það liður í þeirri vegferð Landeldis að velja eins og kostur er umhverfisvænar leiðir í uppbyggingu og rekstri félagsins.“

 

Nánari upplýsingar veita:

Heimir Ingimarsson, jarðfræðingur Landeldis

[email protected], s. 691 5831

Guðmundur Á. Böðvarsson, framkvæmdastjóri Ræktunarsambandsins

[email protected], s. 891 7767

Þorlákshöfn

+354 518 8000

[email protected]

landeldi



CATEGORIES


NEARBY SERVICES

  • Best of Iceland

    Best of Iceland
  • Related Articles

      GG Verk

      GG Verk

      GG Verk

      GG verk var stofnað árið 2006 og eru eigendur þess þriðja kynslóð smiða í fjölskyldu sinni og búa því yfir áratuga reyns...
      Suðurverk

      Suðurverk

      Suðurverk

      Suðurverk var stofnað árið 1967 sem sameignarfélag. Fyrstu árin starfaði félagið sem vélaleiga en fór að taka þátt í hin...

      Vörðufell byggingafélag

      Vörðufell byggingafélag

      Vörðufell er alhliða byggingafyrirtæki sem annast alla byggingarvinnu. Fyrirtækið var stofnað árið 2005 af þeim Unnari ...
      Eykt

      Eykt

      Eykt

      Byggingarfélagið Eykt var stofnað árið 1986 og er fyrirtækið um þessar mundir meðal stærstu byggingarfélaga landsins. ...