Frá sýningunni Í hlutarins eðli – skissa að íslenskri samtímalistasögu [1.0] í Hafnarhúsi.
Listasafn Reykjavíkur býður upp á létta leiðsögn um valdar sýningar í Hafnarhúsinu fyrir gesti sem vilja forvitnast um hvað er í gangi í samtímalist. Markhópurinn eru fróðleiksfúsir byrjendur á öllum aldri. Sagt verður stuttlega frá sögu Listasafns Reykjavíkur og hlutverki þess, sérstöðu Hafnarhúss sem miðstöðvar samtímamyndlistar og einstakri hönnun hússins. Loks skoðum við saman nokkur verk á sýningum og veltum því fyrir okkur hvað listamennirnir eru að pæla. Boðið er upp á kvöldkaffi, afslappað spjall og rölt um sýningarsali með sérfræðingi á vegum safnsins. Tilvalið sem hluti af kvöldstund með hópi vina eða samstarfsfélaga. Allt sem þú vildir vita um samtímalist en þorðir ekki að spyrja!Fimmtudag 5. apríl kl. 20.00 í Hafnarhúsi
Miði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsi, Tryggvagötu 17 101 Reykjavík
+345 411 6400
5. apríl kl 20:00