Leiðsögn um sýninguna Líðandin – la durée með Eddu Halldórsdóttur, verkefnastjóra skráningar hjá Listasafni Reykjavíkur, verður sunnudaginn 25. mars kl 14:00 á Kjarvalsstöðum.
Á sýningunni eru mörg sjaldséð verk, einkum frá fyrri hluta starfsævi Jóhannesar Sveinssonar Kjarval (1885-1972). Á öðrum áratug síðustu aldar varð Kjarval fyrir áhrifum frá ríkjandi liststraumum í Evrópu, þar sem sundurgreinandi form og uppbrot sjónarhornsins voru meðal helstu einkenna ýmissa framúrstefnuhreyfinga, einkum kúbisma og fútúrisma.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.