Hulda Rós Guðnadóttir

Sýning myndarinnar Keep Frozen  eftir Huldu Rós Guðnadóttur
Fimmtudag 18. mars kl. 20.00 í Hafnarhúsi
Í tengslum við sýninguna WERK – Labor Move verður sýning á heimildarmyndinni Keep Frozen eftir Huldu Rós Guðnadóttur í fjölnotasal Hafnarhúss.

Keep Frozen er heimildarmynd um hóp verkamanna sem vinnur við að afferma frystitogara. Þrátt fyrir að íslensk menning eigi fjölmargar sögur, ljóð og söngva af sjómönnum hefur lítið verið ort eða fjallað um erfiðisvinnu bryggjuverkamanna. Hér er á ferðinni saga um þrautseigju mannsins og hvernig sigrast má á verkefnum sem virðast óyfirstíganleg í byrjun.

Myndin hefur verið tilnefnd til verðlauna á kvikmyndahátíðinni í Varsjá, á hátíðinni Vision de Réel í Sviss, á kvikmyndahátíðinni í Lübeck og á Nordisk Panorama. Á Íslandi var myndin tilnefnd til Menningarverðlauna DV og Eddunnar og vann áhorfendaverðlaun á Skjaldborg. Í Þýskalandi var hún valin til sýninga í flokki alþjóðlegra heimildarmynda á elstu og virtustu heimildarmyndahátíð
landsins í Leipzig áður en henni var dreift í listræn kvikmyndahús í Þýskalandi.

iframe code

NEARBY SERVICES

  • Best of Iceland

    Best of Iceland
  • Related Articles

      Teréziu & Enaldo í Litla Gallerý

      Teréziu & Enaldo í Litla Gallerý

      Dagana 30. júní - 3. júlí n.k. verður samsýning á verkum Teréziu & Enaldo í Litla Gallerý Strandgötu 19 Hafnarfirði....

      Sigurður Sigurðsson

      Sigurður Sigurðsson

      Sigurður Sigurðsson Sigurður ólst upp á Ísafirði og síðar á Sauðárkróki. Hann var stúdent frá MA 1937 og lauk cand. p...

      Gallerí Kúpa

      Gallerí Kúpa

      Gallerí Kúpa er listamannarekið gallerí/rými staðsett að Laugavegi 29b í Reykjavík....

      THIRD POLE – HIMALAYA / Arctic Circle VIRTUAL Prior to the Abu Dhabi Forum

      THIRD POLE – HIMALAYA / Arctic Circle VIRTUAL Prior to the Abu Dhabi Forum

      Live dialogue with experts - December 16th at 2 PM GMT / 9 AM EDT This VIRTUAL dialogue is moderated by Mr. Dagfi...