Ragnar Axelsson listamaður

Leiðsögn listamanns: Þar sem heimurinn bráðnar
Laugardag 20. mars kl. 14.00 í Hafnarhúsi

Ragnar Axelsson listamaður verður með leiðsögn um sýninguna Þar sem heimurinn bráðnar í Hafnarhúsi.

Það er fullbókað á þennan viðburð.

Í meira en 40 ár hefur Ragnar Axelsson myndað fólk, dýr og landslag afskekktustu svæða norðurslóða, þar með talið hér á landi, í Síberíu og á Grænlandi. Hann vinnur nú að því að stækka þetta svæði og ferðast mjög víða í leit sinni að myndefni.

Í ljósmyndaverkum sínum og ljósmyndabókum endurspeglar hann óvenjuleg tengsl íbúa norðurslóða við öfgakennt umhverfi sitt – tengsl sem eru nú stöðugt að breytast vegna breytinga á loftslagi. Ragnar skrásetur hvernig þessar breytingar hafa áhrif á líf fólks og dýra og hvaða ógn býr að baki hlýnun jarðar.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.

RELATED LOCAL SERVICES