Margrét Jónsdóttir, Handanheima

Sýning Margrétar Jónsdóttir, Handanheima, er sumarsýning Borgarbókasafnsins í Spönginni. Sýningin er vörðuð í innsetningu sem inniheldur persónulega Margrétar og hluta af heimili hennar, sem hún flytur inní í sýningarrýmið.
Margrét vinnur með upplifanir, umhverfi, tilfinningar og reynslu sem umbreytast í myndmál. Það getur haft margvíslegar skírskotanir, bæði augljósar og faldar, sem síðan þróast út í eitthvað allt annað en stóð til í upphafi. Allt fléttast einhvern vegin saman, lag ofaná lag sem mynda munstur og úr skítnum framkallast fegurðin.

NorrænaHúsið árið 1993. Einkasýning í Reykjavík
“Uppsetning sýningarinnar er um margt sérstök. Margrét sýnir hér ellefu stór olíumálverk (flest meira en 2×3 metrar) og fimmtán minni verk, sem eru unnin með aquarelle á handgerðan pappír; stóru verkin eru fest beint á veggina, en ekki á blindramma, svo að tilfinningin fyrir sköpun myndanna verður afar sterk hjá áhorfandanum. Lýsingin er höfð takmörkuð, sem eykur enn á dulúð hinna dimmu myndflata.”
Margrét er fædd í Reykjavík og hefur starfað óslitið að myndlist í rúm 50 ár. Meirihluta starfsævinnar hefur hún sinnt listkennslu, við grunnskóla, framhaldsskóla og Myndlistarskóla Kópavogs. Margrét hefur staðið fyrir vatnslitanámskeiðum í Frakklandi, hún hefur unnið við grafíska hönnun og rekið auglýsingastofu. Margrét lauk prófi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands, í frjálsri myndlist og grafískri hönnun. Mastersnám stundaði hún við Central Saint Martin’s College of Art, síðar stundaði hún framhaldsnám við Kennaraháskóla Íslands.
Margrét hefur haldið á fimmta tug einkasýninga og tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis. Hún var ein af stofnendum Gallery Suðurgötu 7, sem var mikilvæg miðstöð í þróun framlínumyndlistar á Íslandi. Hún var einnig einn af stofnendum Hagsmunafélags myndlistarmanna og SÍM. Verk eftir Margréti eru í eigu helstu listasafna landsins, hún hefur hlotið ferðastyrki og starfslaun listamanna. Margrét er meðlimur í FÍM, Íslenskri grafík, SÍM og Nýlistasafninu og hún er heiðursfélagi FÍMK.
Meira um Margréti:
http://mjons.blogspot.com,

RELATED LOCAL SERVICES

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0