Safnahúsið á Menningarnótt
Forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir og Menningar- og viðskiptaráðherra Lilja Dögg Alfreðsdóttir opna nýja barnasýningu í Safnahúsinu kl. 14.
Listsköpun, smiðjur, þrautir, leikir og andlitsmálning fyrir yngstu gesti safnsins milli kl. 13 og 17.
Örfyrirlestrar um eldsumbrot og leiðsagnir milli kl. 16 og 21.
Kaffi og kleinur í boði safnsins.
Öll velkomin!
Kl. 13
Dúó Stemma
Lifandi og skemmtilegt tónlistaratriði þar sem gestir taka virkan þátt.
Kl. 14 – 16
Ari Ólafsson frá Vísindasmiðjunni leiðir fólk um leyndardóma rafmagnsins.
Kl. 14 – 17
Barmmerkjasmiðja þar sem líffjölbreytileiki hafsins veitir innblástur.
Kl. 14 – 17
Förum að veiða!
Leikur þar sem gestir veiða plastdýr úr hafinu.
Kl. 14 – 17
Andlitsmálning fyrir börn þar sem áhersla er lögð á undur hafsins!
Kl. 16
Harpa Þórsdóttir safnstjóri Listasafns Íslands leiðir gesti um gersemar Safnahússins.
Örfyrirlestrar um eldsumbrot
Kl. 17 – 17:15
Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur og prófessor við Háskóla Íslands segir frá eldsumbrotum á Reykjanesskaga.
Kl. 17:15 – 17:30
Anna Líndal myndlistarmaður segir frá verkinu Menjar um tilfinningalegan skjálfta sem tengist umræddum eldsumbrotum. Verkið var hluti af haustsýningu Norræna hússins 2021.
Kl. 17:30 – 17:45
Ari Trausti Guðmundsson, jarðvísindamaður og rithöfundur
Myndlist í eldvirkninni og eldvirkni í myndlistinni.
Kl. 17:45 – 18
Haraldur Auðunsson jarðeðlisfræðingur og dósent við Háskólann í Reykjavík fjallar um segulsvið jarðar.
Kl. 18
Leiðsögn um listaverkin í Safnahúsinu sem tengjast eldsumbrotum.
Dagný Heiðdal, listfræðingur.
Kl. 20 – 21
Landvernd – Hugvekja um orkuþörf
Auður Önnu Magnúsdóttir og Ágústa Jónsdóttir
Listasafn Íslands við Fríkirkjuveg
Fjölbreyttar sýningar, listaverkstæði fyrir börn og tónleikar!
Kl. 14 – 17
Krakkaklúbburinn Krummi
Listaverkstæði á Menningarnótt
Komið og skapið í fallegu umhverfi safnsins, alls kyns blandaður efniviður í boði, málning á striga, vatnslitir, fundinn efniviður og frumlegar aðferðir í listsköpun þar sem listaverkin á sýningum safnsins veita innblástur.
Ný dagskrá Krakkaklúbbsins Krumma fyrir haustið 2022!
Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi.
Umsjón með listaverkstæðinu hefur Kristín Dóra Ólafsdóttir, myndlistarmaður og listgreinakennari.
Kl. 17
Kliður í Listasafni Íslands
Kórinn Kliður skapar töfrandi upplifun með söng sínum fyrir gesti Listasafns Íslands á Menningarnótt.
Viðburðurinn mun kallast á við myndlistarsýninguna Liðamót þar sem sýnd eru verk Margrétar H. Blöndal, en hún er einnig meðlimur í kórnum. Flutt verða að vönduð verk eftir meðlimi kórsins, bæði ný og eldri. Í þessum kór sem á engan sinn líkan koma saman tónskáld, myndlistarfólk, skáld, sviðslistafólk og hljóðfæraleikarar sem hafa á síðustu árum staðið fyrir ýmiss konar viðburðum og frumflutt tónverk eftir meðlimi hópsins.
Kl. 20
Tónleikar með japanska píanóleikaranum Tempei Nakamura.
Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við Japanska sendiráðið á Íslandi.
Öll hjartanlega velkomin!
NÝJAR SÝNINGAR FRAMUNDAN
Á heimasíðu safnsins má finna upplýsingar um nýjar og spennandi sýningar í Listasafni Íslands 2022.
SAFNBÚÐIN
Megináhersla Safnbúðarinnar er kynning og sala á útgáfum safnsins, listaverkakortum og plakötum. Þar er einnig fáanleg listræn gjafavara tileinkuð söfnum, úrval íslenskra listmuna og hönnun. Safnbúðin leitast við að upplýsa og auka ánægju safngesta.
Hér má finna hlekk inn á vefverslun Safnbúðarinnar.