Opnun – Solander 250: Bréf frá Íslandi og Paradise Lost
Laugardaginn 27. ágúst kl. 14
Laugardaginn 27. ágúst kl. 14 bjóðum við ykkur velkomin á opnun tveggja sýninga í Sverrissal Hafnarborgar en þær eru Solander 250: Bréf frá Íslandi og Paradise Lost – Daniel Solander’s Legacy, sem unnar eru í samstarfi við sendiráð Svíþjóðar á Íslandi og félagið Íslenska grafík.
Sýningin Solander 250: Bréf frá Íslandi er sett upp til að minnast þess að í ár eru 250 ár liðin frá merkum erlendum vísindaleiðangri til Íslands árið 1772. Með í þeirri för var einn af lærisveinum hins heimsþekkta sænska náttúruvísindamanns Carls von Linné, náttúrufræðingurinn Daniel Solander frá Svíþjóð. Þá skrásetti Solander og safnaði margs konar fróðleik um náttúru Íslands, menningu, siði og klæðaburð þjóðarinnar. Á sýningunni túlka tíu íslenskir listamenn frá félaginu Íslenskri grafík þessa atburði og þær breytingar sem hafa orðið á landi og þjóð síðan.
Samhliða kynnum við svo sýninguna Paradise Lost – Daniel Solander’s Legacy, sem ætlað er að minnast ferða Solanders til Kyrrahafsins árið 1769. Eru þar sýnd verk tíu listamanna frá Kyrrahafssvæðinu en Solander var í áhöfn HMS Endeavour í fyrstu ferð Evrópumanna til Ástralíu. Mynda sýningarnar tvær þannig einstakt samtal Norðurskautsins og Kyrrahafsins í ljósi ferða Solanders.
Paradise Lost – Daniel Solander’s Legacy hefur áður verið sett upp á Nýja-Sjálandi, í Ástralíu og Svíþjóð en að loknum sýningartímanum í Hafnarborg munu sýningarnar ferðast um landið. Umsjón með sýningunni Solander 250: Bréf frá Íslandi fyrir hönd félagsins Íslenskrar grafíkur hafa Anna Snædís Sigmarsdóttir og Elísabet Stefánsdóttir.
Þátttakendur í Solander 250: Bréf frá Íslandi eru Anna Líndal, Aðalheiður Valgeirsdóttir, Daði Guðbjörnsson, Gíslína Dögg Bjarkadóttir, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Iréne Jensen, Laura Valentino, Soffía Sæmundsdóttir, Valgerður Björnsdóttir og Viktor Hannesson.
Þátttakendur í Paradise Lost – Daniel Solander’s Legacy eru John Pusateri, Alexis Neal, Dagmar Dyck, John McLean, Tabatha Forbes, Michel Tuffery, Sharnae Beardsley, Jo Ogier, Lynn Taylor og Jenna Packer.