D33 Tónn: Leiðsögn listamanns í Hafnarhúsi

D33 Tónn: Leiðsögn listamanns
Fimmtudag 12. apríl kl. 20.00 í Hafnarhúsi

Anna Fríða Jónsdóttir verður með leiðsögn um sýningu sína Tón í D-sal Hafnarhússins.

Á ferðalögum sínum hefur Anna Fríða leitað eftir samhljómi í umhverfinu, þar sem hún hlustar eftir einstökum tónum. Hún skoðar veröldina í kring um sig eins og úrval af hljóðfærum þar sem ýmislegt er í boði; pákur, píanó, bjöllur og strengir. Hún fangar þessar hljóðbylgjur og býr þeim til form í verkum sínum. Hún gerist hljómsveitastjóri náttúrunnar þegar hún stendur upp á trjábol og stjórnar skógarsinfóníu, býr til tónlist úr heilabylgjum og reynir að hafa áhrif á þær með rödd sinni, smíðar tónverk úr snörpum vindhviðum og undirtónum öldunnar.

Anna Fríða er 33. listamaðurinn sem sýnir í sýningarröð D-salar. Markmið sýningaraðirnnar er að gefa efnilegum listamönnum tækifæri til að vinna í fyrsta sinn að einkasýningu í opinberu listasafni og beina athygli gesta að nýjum og áhugaverðum hræringum innan listheimsins.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.

RELATED LOCAL SERVICES