Tendra

HLUTVERK

Með stöðugri upplýsingaöflun um þarfir notenda og skilningi á viðskiptaumhverfi viðskiptavina okkar tryggir Tendra viðskiptavinum sínum hámarks virðisauka.

REYNSLA

Við hjá Tendra höfum áralanga reynslu af hönnun mannvirkja. Við leggjum okkur fram við að skilja starfsumhverfi viðskiptavina okkar og getum þannig betur aðstoðað þá við að skapa aukin verðmæti og finna bestu lausnirnar hverju sinni.

Á undanförnum árum höfum við hannað hundruð íbúða á Íslandi og í Noregi en stór hluti þeirra hafa verið það sem kalla má litlar en vel nýttar íbúðir.
Nýjar vinnuaðferðir

Við söfnum markvisst upplýsingum um þarfir húsnæðiskaupenda og notum þær til að búa til lausnir sem þörf er fyrir. Sú vissa að það sé þörf fyrir vöruna dregur úr áhættu þróunaraðilans.

VIÐ VINNUM STRAUMLÍNULAGA (LEAN)
  • Röng stefna er leiðrétt jafnóðum
  • Minni sóun
  • Hönnunar- og þróunartími styttist
  • Lægri kostnaður
VIÐ BJÓÐUM UPP Á:
  • Neytendadrifna íbúðahönnun
  • Aðstoð við markaðssetningu íbúðahúsnæðis
  • Gerð neytendakannana og markhópagreininga
  • Hagkvæmnisathuganir (feasibility studies)
  • Ráðgjöf við þróun lóða
  • Alhliða arkitektahönnun

RELATED LOCAL SERVICES