Þingvellir er helgur staður fyrir okkur Íslendinga. Á Þingvöllum var lýðveldið stofnað; loksins frjáls þjóð þann 17. júní árið 1944. Þarna var líka Alþingi stofnað, árið 930, fimmtíu og sex árum eftir að landið var numið. Elsta þjóðþing veraldar. Þingvellir, er nú þjóðgarður, sá fyrsti í lýðveldinu, stofnaður árið 1928, verður því hundrað ára eftir tæp þrjú ár. Þingvellir, sem eru aðeins í 50 km / 30 mi, fjarlægð frá Reykjavík, er einn fjölsóttasti ferðamannastaður landsins, enda er ekki bara sagan sem dregur fólk að, líka náttúran sem er einstök. Það er engin betri tími til að heimsækja Þingvelli, en haustið, þegar landið breytir um lit, klæðist haustlitunum. Icelandic Times / Land & Saga skrapp austur á Þingvelli, í roki og rigningu, ásamt hundruðum, þúsundum annarra ferðamanna sem langaði að sjá haustlitina, áður en vetur konungur tæki völdin.








Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Þingvellir 04/10/2025 – A7C R : FE 2.5/40mm G



