Maður aldrei að endurtaka sig…nema eins og í ljósmyndun, þegar maður getur leikið sér með veðrið, ljósið og fær nýjar mynd… af sama stað. Eins og Icelandic Times / Land & Saga gerði í dag. Í gær heimsóttu við Grótaþorp, einstakan bæjarhluta í miðborginni. Í dag var í þorpinu allt öðru vísi umhorfs. Það hafði snjóað, það var önnur stemming, birta í þorpinu sem markast af Aðalstræti, elstu götu Reykjavíkur, og Túngötu, Vesturgötu og Garðastræti. Grjótaþorp er lítið 250 metra langt og 150 metra breytt svæði ofan við Kvosina, í brekkunni upp og vestan við Aðalstræti, þar sem Reykjavík varð til, fyrir um 250 árum. Einstakur bæjarhluti, úthverfi, þar sem maður sér Reykjavík öðruvísi, dag frá degi.







Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Reykjavík : 27/02/2026 : GFX100RF – 4.0/35mm



