Grjótaþorp

Þorp í miðborginni

Já það er þorp í miðri miðborg Reykjavíkur. Fyrsta úthverfið, þó það sé örfáa metra frá Kvosinni, þar sem Reykjavík, varð til, byggðist upp. Húsaskipan og götumynd þessa þorps er ansi óregluleg, enda var byggðin sprottin upp áður en Reykjavík var skipulögð, í byrjun síðustu aldar. Þorpið er lítið og er kennt við kot sem nefndist Grjóti, ofan við Kvosina, í brekkunni upp og vestan við Aðalstræti, ein af þremur fyrstu götum höfuðborgarinnar, hinar eru Austurstræti og Hafnarstræti. Þegar Dómkirkjan var byggð 1786, eftir að Dómkirkjan í Skálholti féll í jarðskjálfta, var mest af grjótinu í veggjum Dómkirkjunnar teknir úr túninu á Grjóta, túnið var ónýtt á eftir, en byggð, sem er blönduð af nýju og gömlu lifir í dag góðu lífi í Grjótaþorpi. Icelandic Times / Land & Saga lagði ekki land undir fót, heldur heimsótti þessi byggð, í miðjum miðbænum. 

Grjótaþorp
Grjótaþorp
Grjótaþorp
Grjótaþorp
Grjótaþorp
Grjótaþorp
Grjótaþorp

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Reykjavík : 26/02/2026 : GFX100RF – 4.0/35mm