Hraun, þegar það kemur upp á yfirborðið er það á milli 700°C og 1200°C gráðu heitt. Á síðustu öld, voru hvorki meira né minna en fjörutíu eldgos á Íslandi. Það sem er af þessari öld eru eldgosin orðin sautján á tuttugu sex árum. Þeim fjölgar semsé, landið bæði hækkar og stækkar. Hvar næsta eldgos verður er ómögulegt að segja, Hekla, Bárðarbunga, eða á Reykjanesi., þar sem mikið er í gangi. Okkar færustu vísindamenn vita mikið, en… náttúran er óútreiknanleg, svo það er næsta vonlaust að spá. Katla er komin á tíma, líka Öræfajökull og Askja.
Hér koma myndir af hrauni, nýju heitu hrauni komandi úr iðrum jarðar að móta Ísland, rúmlega þúsund gráðu heitt.







Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Ísland : 24/02/2026 : RX1R II, A7R III, A7R IV – 2.0/35mm Z, FE 1.2/50mm GM, FE 2.8/100mm GM, FE 1.8/135mm GM



