Uppspuni – Sýning Heiðrúnar Kristjánsdóttur

LAUGARDAGINN 21.FEBRÚAR kl. 15:00
Stúdíó Stafn, Ingólfsstræti 6

Verið velkomin á sýningu Heiðrúnar Kristjánsdóttur, UPPSPUNI, Stúdíó Stafni, Ingólfsstræti 6.

Sýningin opnar laugardaginn 21. febrúar, kl. 15 – 17 og verður opin alla daga frá kl. 14 – 17.

Sýningarlok eru 1. mars.

UPPSPUNI er sýning nýrra myndverka sem spunnin eru upp úr gömlum marglesnum bókum.

Eftir síðustu sýningu mína á vaxbornum bókarkápum (Kjölfesta, 2012) blasti við mér mikill fjöldi  kápulausra bóka. Mig langaði að spinna myndverk upp úr bókunum því litbrigði og  eiginleikar hinna fjölmörgu pappírstegunda hafa jafnan heillað mig og oft skarta snið bókanna  gyllingu, munstrum og litum. Prentsverta og leturgerð tala einnig sínu máli.

Þessi pappírsverk tjá þakklæti mitt og ástarhug til bókarinnar, sheidrun-uppspunamyndem allt mitt líf hefur veitt mér innblástur og verið mér uppspretta þekkingar. Hvert og eitt verk er myndrænn uppspuni, flæði hughrifa úr heimi bóka og bókmennta.

Heiðrún Kristjánsdóttir, febrúar 2015