Gufuneshverfið, er nýjasta hverfi Reykjavíkur, byggt eftir vinningstillögu úr hönnunarsamkeppni í samvinnu við Arkitektafélag Íslands. Sigurvegarar voru hollensku arkitektastofurnar Jvantspijker og Felixx, en þar kemur fram sú framtíðarsýn að Gufunes eigi að verða eins konar ventill fyrir ungt fólk sem kýs grósku og borgarbrag í stað úthverfa. Enda var Gufunesverkefnið hjá Reykjavíkurborg að auðvelda ungu fólki að eignast sitt fyrsta húsnæði. Lögð verður áhersla á að nýta umhverfisgæði og staðaranda sem grunn að samfélagi þar sem tækifæri, hagkvæmni og upplifun verða í forgrunni. Hverfið er byggt á fallegri lóð Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi, sem hóf starfsemi árið 1954, fyrsta stóriðjan á landinu, og fjármögnuð með Marshall aðstoðinni, langt fyrir utan bæinn. Starfsemin lagðist af árið 2001, eftir sprenginu í verksmiðjunni, en í rúman áratug, hafði Reykjavíkurborg reynt að loka verksmiðjunni, sem komin var inn í miðja borg. Gufunes er óneitanlega fallegur staður við sundin blá og gamla verksmiðjan hefur verið breytt í kvikmyndaver. Fróðlegt verður að fylgjast með uppbyggingu svæðisins, en íbúar eru fluttir inn í fyrsta hluta verkefnisins. Icelandic Times / Land & Saga tók púlsinn í hverfinu.










Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Reykjavík 15/07/2025 – A7C R, RX1R II : FE 2.8/100mm GM, 2.0/35mm Z



