Haustblíða á Skógarströnd

Við Breiðan Breiðafjörð

Breiðafjörður, er einstakur. Einn stærsti fjörður landsins, á miðju Vesturlandi, milli Vestfjarðakjálkans í norðri og Snæfellsnes í suðri. Við enda þessa 125 km langa og 50 km breiða fjarðar eru Dalirnir, þar liggur, Búðardalur eitt af sex þéttbýliskjörnum við Breiðafjörð, hinir fimm, Stykkishólmur, Grundarfjörður, Ólafsvík, Rif og Hellissandur eru allir á norðanverðu Snæfellsnesi. Lífríki og náttúra þessa grunna fjarðar, sem tilheyrir elsta berggrunns Íslands, sem er 6 til 12 milljón ára gamalt, er einstakt. Það eru yfir 3000 eyjar og sker í firðinum, sem er mikilvægt hrygningar- og uppeldissvæði fyrir margar fiskitegundir, eins og þorsk, rækju, hörpudisk og hrognkelsi. Eins er stór hluti af íslensku sela stofnunum sem heldur sig í og við Breiðafjörð. Eins er fjörðurinn eitt mikilvægasta svæði landsins fyrir fuglalíf, eins og Haförninn, en um 80% stofninum lifir í og við Breiðafjörð. Hér eru myndir af náttúru þessa fallega fjarðar, sem er aðeins í rúmlega tveggja tíma akstursfjarlægð frá Reykjavík.

Skemmtiferðaskip á leið frá Grundarfirði, Kirkjufell í Bakgrunni
Höfnin á Rifi, örstutt er út á fengsæl fiskimið
Horft í vestur, í átt að Brokey
Sólstafir í Dalasýslu, Hvammsfjörður í forgrunni
Á Klofningi
Á Barðaströndinni

Breiðafjörður : 16/11/2025 – A7C R, A7RIV, RX1R II : FE 1.8/135, FE 2.8/100mm GM, FE 2.8/90mm G, 2.0/35mm Z