Vogskorin Vatnsleysuströnd

Vatnsleysuströnd, er 15 km löng strandlengja á norðanverðu Reykjanesi, milli Hafnarfjarðar og Keflavíkur. Ströndin er þakin gömlu hrauni, Þráinsskjaldarhrauni, sem rann úr gíg sem liggur norðaustan undir Fagradalsfjalli, fyrir nokkur þúsund árum síðan.
Ströndin er falleg og þrátt fyrir að vera næstum í alfaraleið, því fjölfarnasti þjóðvegur landsins Reykjanesbrautin liggur rétt sunnan við Vatnsleysuströnd, eru furðu fáir sem leggja leið sína eftir gamla þjóðveginum sem liggur meðfram strandlengjunni.
Í dag búa hundrað manns á ströndinni, og 1.100 manns í þorpinu Vogum, svo samtals eru um tólfhundruð manns í sveitarfélaginu. Það var þéttbýlt á Vatnsleysuströndinni í gegnum aldirnar, þrátt fyrir erfið skilyrði til búfjárræktar, en öflug árabátaútgerð var frá mörgum býlum við ströndina, öldum saman, enda stutt á góð og fengsæl fiskimið.
Víða á Vatnsleysuströndinni er að finna fornar minjar, ekki síst rústir verbúða og annarra mannvirkja tengdar útgerð.
Icelandic Times / Land & Saga fór um ströndina, og tók myndir, enda frábær staður til njóta útivistar í næsta nágrenni við Keflavík og Höfuðborgarsvæðið.

Keilir, á miðri mynd, er fallegastur frá Vatnsleysuströnd
Amerískur ljósmyndari á ferð um Vatnsleysuströnd, var yfir sig hrifinn
Kálfatjarnarkirkja, byggð 1893 í skugga. Þarna hefur verið kirkjustaður síðan á 12.öld. Í dag má segja að kirkjan sé á miðjum golfvelli, því Golfklúbbur Vatnsleysustrandarhrepps, hefur lagt góðan golfvöll við kirkjuna, sem er friðuð. 
Knarrarneskirkja, vígð árið 2021
Minna-Knarrarnes
Eyðibýli rétt vestan við Knarrarneskirkju
Hin fallega Vogatjörn, við Hafnargötu í hjarta Voga

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Reykjavík : 26/01/2026 – GFX 100 II / GF 1.7/55mm