Í Borgarbyggð með sína 4090 íbúa eru starfræktir hvorki fleiri né færri en tveir háskólar, annar á Bifröst og hinn á Hvanneyri. Sveitarfélagið sem er það stærsta á vesturlandi geymir margar perlur, ein af þeim er þorpið Hvanneyri við sunnanverðan Borgarfjörð. Þar eru höfuðstöðvar Landbúnaðarháskóla Íslands, Landbúnaðarsafn Íslands og Ullarselið, handverksverslun þar sem handunnin íslensk ull er í forgrunni. Hvanneyrartorfan, með fyrstu skólahúsunum á staðnum, fjósið sem hýsir safnið, íþróttahús, skemmuna og kirkjuna sem var vígð árið 1905, og er í eigu Háskólans er einstök. Hvanneyrartorfan er friðuð vegna sérstöðu sinnar, þar sem hús fyrstu íslensku húsameistarana eru samankomin á einum og sama blettinum. Jörðin Hvanneyri er í landnámi Skallagríms Kveldúlfssonar, föður eins frægasta sonar Íslands, Egils Skallagrímssonar. En Skallagrímur gaf Grími hinum háleyska Þórissyni land fyrir sunnan Borgarfjörð og var hann fyrsti ábúandinn að jörðinni Hvanneyri.
![Dráttarvél á Landbúnaðarsafni Íslands](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1170,height=1170,/wp-content/uploads/2023/07/hvanneyri-landnam-skallagrims_S7C3556.jpg?resize=1170%2C1170&ssl=1)
![Hvanneyrartorfan](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1170,height=780,/wp-content/uploads/2023/07/hvanneyri-landnam-skallagrims_RIV8678.jpg?resize=1170%2C780&ssl=1)
![Hvanneyrarkirkja og fjósið á bakvið](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1170,height=780,/wp-content/uploads/2023/07/hvanneyri-landnam-skallagrims_DSC7867.jpg?resize=1170%2C780&ssl=1)
![Frá sýningu á Landbúnaðarsafni Íslands](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1170,height=780,/wp-content/uploads/2023/07/hvanneyri-landnam-skallagrims_S7C3552.jpg?resize=1170%2C780&ssl=1)
![Farmall Cub dráttarvél](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1170,height=780,/wp-content/uploads/2023/07/hvanneyri-landnam-skallagrims_S7C3559.jpg?resize=1170%2C780&ssl=1)
![Lopapeysur](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1170,height=1170,/wp-content/uploads/2023/07/hvanneyri-landnam-skallagrims_DSC7897.jpg?resize=1170%2C1170&ssl=1)
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Borgarfjörður 24/07/2023 : RX1R II, A7C, A7R IV : 2.0/35mm Z, FE 1.4/24mm GM, FE 2.8/100mm GM