Þegar vel viðrar, jafnvel í svartasta skammdeginu tekur landið vel á móti manni; eins og Icelandic Times / Land & Saga komast að, á ferð sinni um Suðurland. Hér koma þrjár myndasyrpur þar sem birtan bregður á leik. Hér er myndasería númer þrjú, þar sem leikið er sér að vatni. Á Suðurlandi eru nefnilega óteljandi fossar, stöðuvötn og endalaus Suðurströndina sem dregur til sín heima- og erlenda ferðamenn. Suðurland er sá landshluti sem flestir ferðalangar sem heimsækja Ísland skoða. Ástæðan er einföld, náttúrufar er fjölbreytt, stutt frá alþjóðaflugvellinum í Keflavík, stutt frá Reykjavík, og fjölbreytt og góð gisting, í öllum verðflokkum. Jú og síðan auðvitað fossarnir og vötnin, sem eru einstök, eins og sjá má.







Ljósmyndir / Texti : Páll Stefánsson
Suðurland : 14/12/2025 – GFX 100 II : GF 1.7/55mm



