Nýjar Myndir – Hugarró // Hjörtur Hjartarson

Á þessari sýningu eru myndir sem ég hef verið að vinna síðastliðið ár. Þær eru allar málaðar í pappír með vatnslitum og akrílmálningu.

Undanfarin ár hef ég sótt tíma í Yoga Nidra. Þessir tímar eru á föstudögum í Yoga Shala undir handleiðslu Stefáns Atla Thoroddsen. Þetta er liggjandi yoga þar sem kennarinn leiðir hugleiðslu.

Undir lok hugleiðslunnar er yfirleitt farið í ferðalag þar sem kennarinn kallar fram myndir um ákveðinn heim. Oftast er það heimur fegurðar og náttúru.

Með því að fara í þessa tíma hefur það gefið mér að ég næ að kalla fram myndir sem eru lausari við mína eigin skynjun og hugsun um fegurð.

Ég vona að þið njótið myndanna.

Hjörtur Hjartarson (f.1961) stundaði nám við MHÍ 1992-1996 og Universidad de Granada 1996-1997. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga víða um heim og jafnframt tekið þátt í  mörgum samsýningum á ferli sínum.

Sérstök sýningaropnun verður sunnudaginn 20. júlí frá 14:30-17:00 og allir hjartanlega velkomnir!

Aðrir opnunartímar:

Þri. – fös     22.- 25. júl              14:00 – 18:00
Lau                    26. júl              12:00 – 16:00
Sun                    27. júl              14.00 – 17:00

RELATED LOCAL SERVICES