Góðra verka fólk

Myndlistarsýning Halldórs Árna opnar á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks, 1. maí í Litla Gallerý á Strandgötunni. Þetta er 3. sýning hans í þessum litla en vinsæla sýningarými, sem er á milli tveggja húsa sem flestir hafnfirðingar þekkja, en þau hýstu verslanir Magga úrara og skóverslun Geira Jó.
Halldór lærði myndlist í MHÍ 1982-6, hefur haldið fjölda sýninga og tekið þátt í samsýningum, en auk þess kenndi hann listmálun í yfir 30 ár, einkum í Námsflokkunum.
Þema sýningarinnar kallast á við opnunardaginn 1. maí, og heitir sýningin “Góðra verka fólk”. Á sýningunni er einungis ein landslagsmynd, en aðrar myndir hverfast um persónu góðra verka fólks. Ekki endilega verkafólks í þröngasta skilningi, heldur líka fólks sem Halldór Árni hefur kynnst á lífsleiðinni – lífs og liðnum – og hefur auðgað mannlífið í Firðinum með góðri nærveru sinni.
Sýningaropnun verður miðvikudaginn 1.maí 16:00-18:00 og allir velkomnir!
Aðrir opnunartímar:
Fös 3. maí 13:00-18:00
Lau 4. maí 12:00-17:00
Sun 5. maí 14:00-17:00
Þri-fim 7-9. maí 15:00-18:00
Fös 10. maí 13::00-18:00
Lau 11. maí. 12:00-17:00
Sun 12. maí. 14:00-17:00
Viðburðurinn er styrktur af Menningar og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar.

RELATED LOCAL SERVICES