STUDIO STAFN

Umboðssala og forvarsla
Commission sale and conservation

Studio Stafn er forvörslu- og umboðssölufyrirtæki listmuna þar sem boðið er upp á fjölþætta þjónustu varðandi listaverk og forna muni.

Hjá Studio Stafni er unnið við forvörslu og viðgerðir listmuna og frágang á myndverkum. Veitt er ráðgjöf um meðferð, varðveislu og umgjörð listaverka og gefið verðmat og upprunavottun í þeim tilvikum sem það er unnt.

Studio Stafn hlaut viðurkenningu Myndstefs árið 2010 fyrir fagleg viðskipti og heiðarleika gagnvart listamönnum og kaupendum listaverka.

RELATED LOCAL SERVICES