Sýningin Heritage of the past – future of the community

Er óður til yfirgefins Herragarðs í Foeni, Rúmeníu. Herrasetrið var byggt 1750 af rúmensku aðalsættinni Mocioni sem er helst þekkt fyrir að hafa barist fyrir réttindum Rúmena og unnið að því að upplyfta rúmenskri menningu. Síðan þá hefur húsið þjónað samfélaginu með ýmsum hætti og gengt ólíkum hlutverkum, baðhús, leikskóli, menningarmiðstöð og diskótek svo eitthvað sé nefnt. Húsið sjálft er uppfullt af sögu staðarins og samfélagsins í kring og ber merki þeirra ólíku lífsskeiða sem það hefur séð. Samband þess við samfélagið er eins og rauður þráður í gegnum sögu hússins sem endurspeglar bæði það góða og slæma í sögu staðarins.

Sýningin er hluti af verkefni sem stefnir að því að endurbyggja og varðveita herrasetrið í þeim tilgangi að opna þar menningarhús í von um að húsið geti enn á ný þjónað samfélaginu í kring. Þegar byggingin hefur verið endurreist að fullu verður sýningin sett upp þar. Á sýningunni sækja listamennirnir innblástur til þessarar merku byggingar með einum eða öðrum hætt, hvort sem það er til efnislegra eða sögulegra eiginleika hennar eða til samfélagsins og tengsla þess við hana.

Listamenn: Andrada DAMIANOVSKAIA, Ana-Maria Szollosi, Corina Nani, Rebekka Ashley Egillsdóttir, Renée Renard, SAINT MACHINE, Sara Björg Bjarnadóttir, Sorin Scurtulescu

Sýningarstjórar: Alexandru Babusceac og Odda Júlía Snorradóttir

Verkefnið er unnið í samstarfi við Timis County Counsil, Miltoni Association og North Consulting

Facebook viðburður: https://fb.me/e/4pcGfaak2

Sýningaropnun laugardaginn 9. mars frá 15:00- 18:00 í SÍM Gallery, Hafnarstræti 16. Síðasti sýningardagur er 24. mars. Sýningin er opin á skrifstofu tíma SÍM, alla virka daga frá 12-17.

RELATED LOCAL SERVICES