Höfundur: Aðalstein Ingólfsson

Í þessari veglegu bók um Sigríði Björnsdóttur listakonu er heildaryfirlit myndverka Sigríðar frá árinu 1950 til 2019. Bókin er prýdd yfir 700 ljósmyndum af verkum hennar og gefur bókin góða innsýn í myndlistarferil listakonunnar, einstök tímabil hans og þróun. Einnig er birt ljóðabók Sigríðar sem hönnuð var af Dieter Roth.

Í fyrsta kafla bókarinnar „Myndir endurtekinnar hugljómunnar“ fjallar Aðalstein Ingólfsson listfræðingur um myndlistarferil Sigríðar, helstu áhrifavalda, og sérstöðu hennar meðal samtímamanna í íslenskri myndlistarsögu.

Meginhlutar bókarinnar eru ljósmyndir af myndverkum Sigríðar sem fengin voru að láni úr einkaeigu eða frá opinberum stöðum og söfnum víðs vegar um landið og í útlöndum. Í kaflanum Valin verk er þróunin á ferli Sigríðar undirstrikuð með myndum sem sýna sérstaklega einkenni hvers tímabils.

Kaflinn „Yfirlit verka í tímaröð“ er eins tæmandi yfirlit myndverka og unnt er að veita um myndlistarferil Sigríðar. Með kaflanum „ljóð teikningar“ er samnefnd ljóðabók hennar birt í heild. Bókinni lýkur á köflunum Lífshlaup sem er ferilskrá, og Listamannaferli – lista yfir sýningar sem Sigríður hefur haldið eða tekið þátt í og yfir opinberar stofnanir sem eiga verk eftir hana.

Sigríður lauk myndlistarkennaranámi við Handíða- og myndlistaskólann árið 1952. Hún stundaði framhaldsnám í Bretlandi við Central School of Arts and Crafts í London og síðar við Goldsmiths’ College í sömu borg. Sigríður er brautryðjandi í listmeðferð á Íslandi sem hún vann við alla tíð samhliða listsköpun sinni.

Bókin er kilja, hönnuð af Ármanni Agnarssyni og Birni Roth, prentuð og bundin hjá Svansprenti og saumuð í kjöl. Magnús Reynir Jónsson ljósmyndari myndaði verk Sigríðar og svart hvítar ljósmyndir af listakonunni eru teknar af ljósmyndurunum Andrési Kolbeinssyni og Bjarna Grímssyni. Bókin telur 304 blaðsíður og er 35 x 25 sm að stærð.

Það er hægt að nálgast greinar um myndlist og viðburðakynningar sjá hér

Útgefendur bókarinnar eru börn Sigríðar og Roth Verlag í Basel. Texti bókarinnar er á íslensku og ensku og er hún tilvalin til gjafa.

Sigríður Björnsdóttir nam myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árunum 1947-1951 og lauk myndmenntakennaraprófi árið 1952. Árið 1954 hélt hún til Lundúna í myndlistarnám í The Central School of Arts & Crafts. Jafnframt listiðkun sinni og listkennslu er hún frumherji á sviði listmeðferðar á Íslandi og hefur, sem slík, sett mark sitt á listnálgun nemenda sinna, skjólstæðinga á sjúkrahúsum og listamanna.

Sjá hér viðtal frá 1979 í tímaritinu 19. júní.

Sjá meira umfjöllur hér

Hef aldrei unnið eftir reglum sjá viðtal hér