Guðjón Ketilsson með leiðsögn á Kjarvalsstöðum

Kjarvalsstaðir, sunnudag  27. nóvember  kl. 14:00
Leiðsögn listamanns um sýninguna
Guðjón Ketilsson: Jæja

Guðjón Ketilsson myndlistarmaður verður með leiðsögn um sýninguna Jæja á Kjarvalsstöðum sunnudaginn 27. nóvember kl. 14.00.

Á yfirlitssýningunni Jæja um listferil Guðjóns er von á ýmsu. Þar má sjá skúlptúra samsetta úr fundnum húsgögnum sem hann hefur meðhöndlað á sinn einstaka hátt, fínpússaða trémuni sem líkjast fáséðum nytjahlutum á minjasafni, hárnákvæmar teikningar af líkamspörtum, hús og byggingar af öllum gerðum, samsafn af drasli sem hann hefur viðað að sér og raðað upp í eina heild, ljósmyndir af uppröðuðum munum og fatnað – allskonar fatnað útskorinn í tré, eins og skó, lendarskýlur og hatta. Öll eru verkin á mannlegum skala, þau spretta úr samspili hugar og handar og virka eins og framlenging á manneskjunni.

Guðjón Ketilsson er fæddur 1956 og er sjötti listamaðurinn sem valinn er til þátttöku í sýningaröð Listasafns Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum, þar sem farið er yfir feril lykilpersóna í íslensku listalífi. Hvert og eitt þeirra er valið með tilliti til einstaks framlags þeirra og sérhæfingar á sínu sviði, bæði hvað viðvíkur miðlum, aðferðum og viðfangsefnum. Slík stöðutaka á sér stað í framsetningu lykilverka frá ólíkum tímum í Vestursal Kjarvalsstaða og útgáfu sýningarskrár þar sem fjallað um ferilinn í samhengi listasögunnar og samtímans.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.

105 Flókagata 24 Reykjavik

411 6410

[email protected]

listasafnreykjavikur.is


27. nóvember 2022 kl. 14.00.


CATEGORIES


NEARBY SERVICES

  • Best of Iceland

    Best of Iceland
  • Related Articles

      Átök við hafið – Þrándur Arnþórsson

      Átök við hafið – Þrándur Arnþórsson

      ÁTÖK VIÐ HAFIÐ Íslendingar hafa sótt sjó frá fyrstu tíð. Sjósókn er grunnurinn að byggð á landinu en sjórinn er jafnf...

      Haukur Halldorsson

      Haukur Halldorsson

      Haukur Halldórsson (f. 1937) helstu viðfangsefni hans í myndlist eru Norræn goðafræði og norður-evrópsk goðafræði, k...

      Mens et Manus

      Mens et Manus

        Mynd:: Georg Óskar. I forced my drowsy eyes open to find myself on the back of a massive dragon, 2022. Courtes...

      Ragnar Axelsson listamaður

      Ragnar Axelsson listamaður

      Leiðsögn listamanns: Þar sem heimurinn bráðnar Laugardag 20. mars kl. 14.00 í Hafnarhúsi Ragnar ...