Aðventuhátíð Kópavogs

Aðventuhátíð í Kópavogi verður haldin laugardaginn 2. desember en við það tilefni verða ljósin á jólatré Kópavogsbæjar við menningarhúsin tendruð.

Ævintýrapersónur úr Jólaskógi stíga á svið og jólasveinar bregða sér í bæinn en ljósin á trénu verða tendruð klukkan 16 þar sem fram kemur Kór Hörðuvallaskóla ásamt ævintýrapersónum. Skólahljómsveit Kópavogs flytur jólatónlist frá 15:40.

Frá klukkan 13 verður boðið upp á fjölbreytta aðventudagskrá fyrir alla fjölskylduna. Ilmandi aðventuóróar, úkraínskt hátíðarskraut, lifandi tónlist og notaleg aðventustemning.

Verið hjartanlega velkomin.

Aðventusmiðjur
13:00 – 15:45 Ó!Rói. Skapandi smiðja með ÞYKJÓ (Bókasafn)
13:00 – 15:45 Jólaperlusmiðja (Bókasafn)
13:00 – 15:45 Úkraínsk aðventusmiðja (Gerðarsafn)
13:00 – 15:45 Jólaskúlptúrsmiðja (Salurinn)
Jólasögustund í Náttúrufræðistofu
14:00 – 14:15 Jólakötturinn með Arndísi Þórarinsdóttur
15:00 – 15:15 Jólakötturinn með Arndísi Þórarinsdóttur (Náttúrufræðistofa)
Jólaörtónleikar
13:30 – 13:45 Kórinn Viðlag (Salurinn)
14:00 – 14:15 Samkór Kópavogs (Salurinn)
14:15 – 14:30 Kór Hörðuvallaskóla (Gerðarsafn)
14:30 – 14:45 Kvennakór Kópavogs (Salurinn)
15:15 – 15:30 Barnakór Smáraskóla (Bókasafn)
15:40 – 16:00 Skólahljómsveit Kópavogs (Útisvæði)
Jólasveifla í Salnum
15:00 – 15:40 Kjalar Martinsson Kollmar, söngur og píanó, Alexander Grybos, gítar, Hlynur Sævarsson, kontrabassi
Jólamarkaður í Salnum
13:00 – 16:00
Fallegt handverk til sölu frá Hlutverkasetri, Tau frá Tógó og Ás vinnustofu
Tendrun jólatrésins
16:00 – 16:30

Ævintýrapersónur úr Jólalundi ásamt Kór Hörðuvallaskóla.

Jólasveinar mæta í bæinn og dansa í kringum jólatréð.

Bókasafn og Náttúrufræðistofa eru opin frá 11:00 – 17:00 og Gerðarsafn frá 12:00 – 18:00.

Veitingasala Krónikunnar verður í Gerðarsafni og í Salnum og Möndlubásinn verður með ilmandi möndlur til sölu á útisvæði frá 13:00 – 17:00.

Í Gjábakka, félagsmiðstöð eldri borgara við Fannborg 8, verður boðið upp á laufabrauðsgerð, veitingar og notalega tónlist frá 13 – 17.

Njótum aðventunnar saman

RELATED LOCAL SERVICES