Haustsýning Hafnarborgar 2018 Vinningstillaga kynnt.

myndlistarhópurinn IYFAC

Ljósmynd: Brynjar Birkisson

Síðastliðið haust kynnti Hafnarborg í áttunda sinn, verkefni sem hefur það að markmiði að gefa sýningarstjórum kost á að senda inn tillögu að haustsýningu í Hafnarborg. Höfundar tillaganna sem bárust eiga að baki ólíkan náms og starfsferil sem tengist myndlist og menningartengdum verkefnum. Það er Listráð Hafnarborgar ásamt forstöðumanni sem fer yfir umsóknir og velur vinningstillöguna ár hvert.

Nú hefur farið fram lokaval á tillögum að haustsýningu í Hafnarborg fyrir árið 2018 en það var tillaga Mörtu Sigríðar Pétursdóttur, menningar- og kynjafræðings, sem varð fyrir valinu.

Marta Sigríður Pétursdóttir

Sýningartillagan sem ber vinnutitilinn Alla veðra von fjallar um samband mannsins við veður. Veðrið er óreiðukennt afl sem ekki er hægt að henda reiður á og hafa athafnir okkar mannanna orðið til þess að veðrið hegðar sér á óvæginn hátt, sem bitnar oftar en ekki harðast á þeim sem höllustum fæti standa. Mannfólkið hefur búið sér til ótal mismunandi hjúpa milli sín og veðursins – en á sama tíma er hver og ein manneskja sjálf himnan sem skilur að veðrið hið ytra og veðrið hið innra. Sótt er fanga í þjóðfræðilegar og mannfræðilegar heimildir, fornar sagnir, atburði líðandi stundar, loftslagsvísindi og veðurfræði, upplifanir og hversdagslegar aðstæður í samtímanum þar sem kjarninn er alltaf manneskjan frammi fyrir veðri.

Marta Sigríður Pétursdóttir, sýningarstjóri, útskrifaðist með BA gráðu í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands 2008, MA gráðu í menningarfræði frá Goldsmiths College í London 2011 og MA í kynjafræði frá School of Oriental and African Studies í London 2014. Hún hefur fengist við margvísleg skrif tengd myndlist, bókmenntum, kvikmyndum og menningu.

Þátttakendur í sýningunni starfa undir merkjum myndlistarhópsins IYFAC sem hefur áður unnið að tveimur sýningum. Listamennirnir eru Halla Birgisdóttir, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Ragnheiður Maísól Sturludóttir, Sigrún Hlín Sigurðardóttir og Steinunn Lilja Emilsdóttir.

Hafnarborg, Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar, Strandgata 34 220 Hafnarfjörður

585 5790

[email protected]

hafnarborg.is


opið alla daga 12-17 og fimmtudaga til 21


CATEGORIES



NEARBY SERVICES

  • Best of Iceland

    Best of Iceland
  • Related Articles

      Hrynjandi – sýningarstjóraspjall og sýningarlok

      Hrynjandi – sýningarstjóraspjall og sýningarlok

      Hrynjandi – sýningarstjóraspjall og sýningarlok Sunnudaginn 22. ágúst kl. 14.00 Sýningunni Hrynjandi, þar sem sjá má...

      Gegnumtrekkur – Kristín Morthens

      Gegnumtrekkur – Kristín Morthens

      Við bjóðum ykkur velkomin á opnun einkasýningar Kristínar Morthens, Gegnumtrekkur. Í verkum sýningarinnar kanna...

      Soffía Sæmundsdóttir

      Soffía Sæmundsdóttir

      Lokadagur sýningar Soffíi Sæmundsdóttur Inn á milli í Gallerí Fold við Rauðarárstíg er laugardagurinn 11. mars. Soffí...

      Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir

      Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir

      Ásta Créative Clothes Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir er íslensk listakona og fatahönnuður, en listaverk hennar og...