Ásgerður Búadóttir Listþræðir 12.09-2020 til 24.01.2021

Verið velkomin í Listasafn Íslands opnunarhelgina 12.–13. september 2020, frá kl. 10:00–17:00.

Á aldarafmæli Ásgerðar Búadóttur gefst tilefni til að horfa sérstaklega til vefnaðar og þráðlistar í íslenskri samtímalist og þess hvernig listamenn hafa notað þráðinn, þennan fjölbreytta efnivið; spunnið hann, litað, ofið og formað eftir öllum kúnstarinnar reglum. Textíllistin er yfirgripsmikil listgrein með langa sögu og fjölda skilgreindra aðferða. Í dag ríkir mikil gróska í þráðlistinni og má meðal annars greina ýmsar tilraunakenndar leiðir og uppbrot á viðteknum aðferðum sem sýnir okkur hvernig rótgróin listsköpun getur öðlast nýja vídd.

Listamenn sem eiga verk á sýningunni: Anna Líndal Anna Þóra Karlsdóttir Arna Óttarsdóttir Auður Vésteinsdóttir Ása Ólafsdóttir Ásgerður Búadóttir G. Erla – Guðrún Erla Geirsdóttir Guðrún Gunnarsdóttir Guðrún Marinósdóttir Hildur Ásgeirsdóttir Jónsson Hildur Bjarnadóttir Hildur Hákonardóttir Hólmfríður Árnadóttir Hrafnhildur Arnardóttir — Shoplifter Hrafnhildur Sigurðardóttir Ingibjörg Styrgerður Haraldsdóttir Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir Ívar Valgarðsson Jónborg Sigurðardóttir — Jonna Kristinn G. Harðarson Kristín Gunnlaugsdóttir Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá Lilý Erla Adamsdóttir Loji Höskuldsson Nína Gautadóttir Oddný E. Magnúsdóttir Ólöf Einarsdóttir Pétur Magnússon Ragna Róbertsdóttir Ragnheiður Björk Þórsdóttir Rósa Sigrún Jónsdóttir Sigrún Sverrisdóttir Sigurlaug Jóhannesdóttir Vigdís Kristjánsdóttir Þorbjörg Þórðardóttir Þór Vigfússon Þórdís Alda Sigurðardóttir Sýningarstjórar: Dagný Heiðdal og Harpa Þórsdóttir Leiðsögn sýningarstjóra 20. september kl. 14:00 Sunnudagsleiðsögn 4. október kl. 14:00 Leiðsögn sýningarstjóra

25. október kl. 14:00 Sýningin stendur til 24. janúar, 2021.

Sjá fleiri greinar um íslenska myndlistamenn klikka hér

RELATED LOCAL SERVICES