Listasafn Reykjavíkur – Afhjúpun og afhending Kærleikskúlunnar 2023

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra býður til athafnar vegna Kærleikskúlunnar 2023, miðvikudaginn 6. desember kl. 11, í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur.

Kærleikskúlan sem Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra gefur út í 21. sinn verður afhjúpuð við hátíðlega athöfn um leið og hún verður afhent verðugri fyrirmynd. Ár hvert velur Styrktarfélagið handhafa kúlunnar, einhvern sem hefur með verkum sínum breytt viðhorfum og bætt líf samborgara sinna og samfélag, vakið athygli á mikilvægum gildum og sjálfsögðum réttindum.

Bergljót Borg, framkvæmdarstjóri SLF, bíður gesti velkomna og Bjöllukór Tónstofu Valgerðar setur athöfnina með vel völdum jólalögum. Þá mun Ólöf K. Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, kynna listamann Kærleikskúlunnar 2023 en Listasafnið hefur frá upphafi veitt Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra aðstoð og leiðsögn við val á listamanni Kærleikskúlunnar. Gestaráð Reykjadals færir að lokum handhafanum Kærleikskúlu ársins 2023. Hugljúf jólalög flytur Rakel Björk Björnsdóttir, söng- og leikkona, ásamt Kristni Óskarssyni, gítarleikara.

Markmiðið með sölu Kærleikskúlunnar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna og rennur allur ágóði af sölunni óskiptur til sumarbúða Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í Reykjadal. Sala Kærleikskúlunnar fer fram í völdum verslunum um land allt dagana 7.-21. desember og í netverslun Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, kaerleikskulan.is

Léttar veitingar að athöfn lokinni.
Verið hjartanlega velkomin!

Athöfnin fer fram í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi sem stendur við Tryggvagötu 17. Listasafn Reykjavíkur ber sig eftir því að tryggja gott aðgengi og er viðburðurinn aðgengilegur öllum. Tvö bílastæði fyrir fatlað fólk eru í Grófinni sem er vinstra megin við innganginn inn í Hafnarhúsið. Nokkur bílastæði eru við Hafnarhúsið Geirsgötumegin, en einnig er fjöldi bílastæða í bílahúsinu Vesturgötu 7 og Hafnartorgi sem er aðgengilegt frá Geirsgötu. Bílahús eru einnig í göngufjarlægð við Ráðhús, Kolaport og Traðarkot. Allt eru þetta gjaldskyld bílastæði á vegum Reykjavíkurborgar.

RELATED LOCAL SERVICES