Ágúst B. Eiðsson myndlistarmaður f.14.03.1968
Ágúst útskrifaðist úr málaradeild MHÍ árið 1996. Hann hefur haldið nokkrar einka- og samsýningar, þetta er fjórða sýning hans í Litla Gallerý, einnig hefur hann sýnt í Safnahúsinu á Sauðárkróki, Villa Nova, Hótel Varmahlíð og með myndlistarfélaginu Solón sem staðsett var í Gúttó húsinu á Sauðárkróki.
Á þessari sýningu má sjá abstrakt vatnslitaverk sem hann hefur verið að vinna í á síðustu 2 árum. Líflegar og litríkar myndir sem mynda flæði forms og skerpu milli þess sem litirnir leggjast hver ofaná annan og mynda flæði sem ákveðnar og kröftugar pensilstrokur fá að njóta sín.
Sérstök sýningaropnun verður fimmtudaginn 5. mars frá 18:00-21:00 og þú ert velkomin !
Aðrir opnunartímar:
Fös. 6. mar 13:00 – 18:00
Lau. 7. mar 13:00 -17:00
Sun. 8. mar 13:00 – 17:00



