Unnar Ýrar Helgadóttur Undurfögur óreiða

Unnur Ýrr lauk B.A. námi frá Listaháskóla Íslands árið 2005. Hún er grafískur hönnuður og hefur starfað á auglýsingastofum hér á landi og í Svíþjóð. Unnur Ýrr  hefur einnig lokið víðtæku listanámi bæði frá listaskólum erlendis sem og hér heima.

Í málverkum sínum vinnur Unnur Ýrr aðallega með akrýl liti á striga. „Akrýlmálning og mikið vatn. Þar fann ég mína leið.“ segir hún. Líkt og hjá mörgum íslenskum listamönnum hefur íslenska náttúran sterk áhrif á verk Unnar, orkan og hið einstaka íslenska ljós, en einnig finnur íslensk menningarsaga sér gjarnan leið inn í verk hennar. Djarfar litasamsetningar og sterk frásögn einkenna myndir hennar sem eru oft með súrrealísku ívafi. Við fyrstu sýn getur verkið virst fallegt og sakleysislegt, en undirniðri kraumar dýpri merking, stundum dökkleit en alltaf hrá og heiðarleg sem Unnur vísar gjarnan til í titli verksins og beitir dökkum húmor og táknrænum útúrsnúningum til að undirstrika sérstæðan stíl sinn. Fyrst og fremst eru verk hennar þó persónuleg og fjalla um það sem hún er að ganga í gegnum hverju sinni og viðkemur lífi hennar á einhvern hátt.

Sýningin Undirfögur óreiða er fyrsta sýning Unnar Ýrar eftir að nýtt hlutverk, móðurhlutverkið, bættist við líf hennar og eru verkin hennar persónulega saga í gegnum þetta skeið breytinga í lífinu. Hlutverkið sem flestar mæður eru sammála um að sé allra best, þakklátast og fallegast, en svo alls heiðarleika sé gætt, þá er það jafnframt ógnvekjandi, ruglingslegt, taugatrekkjandi og ekki alltaf dans á rósum. Hvað þýðir það fyrir sjálfið að vera ekki lengur í forgrunni, þar sem litlar mannverur hafa tekið yfir sviðið og krefjast fullkominnar athygli – alltaf. Tilfinningarnar togast á. Alsæla og örvænting, hin skilyrðislausa ást, ósérhlífini og örmögnunin sem svo oft fylgir. En reyna samt að halda takti við lífið, finna aftur og endurskapa sjálfið.  Á einstakan, gamansaman, kærleiksríkan, stundum eilítið dökkan en afar hreinskilin hátt dregur Unnur Ýrr upp svipmyndir af móðurhlutverkinu. Svipmyndir sem eiga lítið sameiginlegt með glansmyndum samfélagsmiðlanna en segja sannleikann um móðurhlutverkið í sinni tærustu mynd, hæðir þess og lægðir, allt það frelsi og helsi sem því fylgir. Hina undirfögru óreiðu.

Þetta er þriðja einkasýning Unnar Ýrar í Gallerí Fold og stendur sýningin til 10. desember.

 

RELATED LOCAL SERVICES