Ásmundarsafn – Dómur

Verið öll velkomin á sýningaropnun í Ásmundarsafni, laugardag 7. mars kl. 15.00. Finnur Arnar lýkur vinnustofudvöl sinni í Ásmundarsafni með opnun á sýningunni Dómur sem mun standa yfir til 22. mars.

Finnur Arnar hefur unnið að verkinu frá því í janúar á þessu ári, þegar hann flutti inn á safnið og hefur búið þar og starfað síðan, unnið að verkinu Dómur og tekið á móti gestum og gangandi á opinni vinnustofu í Ásmundarsafni.

Yfir allt árið 2025 hefur listamönnum verið boðin aðstaða í húsinu til þess að vinna að eigin verkum í vinnslu eða hvers konar ferli og í byrjun árs 2026 var það  Finnur Arnar sem tók við sem sjötti listamaðurinn með verk í vinnslu í Ásmundarsafn.

Finnur Arnar Arnarson vinnur oftar en ekki með samband manns og umhverfis í verkum sínum. Hugmyndum sínum finnur hann form í margskonar miðlum, s.s. skúlptúr, innsetningum og ljósmyndum.

Laugardag 7. mars kl. 15.00
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn við Sigtún

RELATED LOCAL SERVICES