Milli tveggja fjarða, Skerjafjarðar í norðri og Hafnarfjarðar í suðri, liggur Álftanes, sem teygir sig til vestur út í Faxaflóa. Á Álftanesi eru Bessastaðir, höfuðból síðan um árið þúsund og síðan lýðveldið var stofnað árið 1944, aðsetur Forseta Íslands. Bessastaðir hafa ávallt verið mikilvægir í sögu þjóðarinnar og jafnan verið aðsetur höfðingja og háembættismanna.
Skáldið og höfðinginn Snorri Sturluson (1179 – 1241) höfundur Snorra – Eddu og Heimskringlu, átti Bessastaði. Eftir víg hans árið 1241, rann jörðin með öllum gögnum og gæðum undir Noregskonung. Hún varð fyrsta jörðin á Íslandi til þess að komast í konungseigu. Hirðstjórar konungs sátu á Bessastöðum og síðar amtmenn og stiftamtmenn ásamt landfógetum.
Í dag er nokkur byggð á þessu láglenda nesi, á sunnanverðu höfuðborgarsvæðinu. Álftanes var sér sveitarfélag þangað það sameinaðist Garðabæ árið 2012. Icelandic Times / Land & Saga átti ferð um Álftanesið, þetta er þetta vanmetin áfangastaður til njóta bæði sögu og útivistar, í næsta nágrenni við Reykjavík, eða Hafnarfjörð.








Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Álftanes : 19/01/2026 – GFX 100 II – GF 1.7/55mm



