A tourist wrote a greeting in Hljómskálagarðurinn

Hálf tvö, í 101

Hef ekki sterka skoðun á klukkunni. Á Íslandi er hún alltaf vitlaus. Hádegi, þegar sólin er hæst á himni er klukkan hálf tvö. Í staðin, eins og nú í desember, birtir rétt um hádegi, sólarlag rétt uppúr klukkan þrjú. Morgnarnir eru dimmir, en við fáum skaplega birtu seinnipartinn. Ef við breytum klukkunni, þá færumst við fjær Evrópu, en lítið nær Norður Ameríku. Þá myndi muna fjórum tímum á Reykjavík og Helskinki, þremur tímum á Stokkhólmi, París og Madrid, tveimur á Lundúnum og Lissabon. Er þá ekki bara betra að vera nær Evrópu í (sumar) tíma. Icelandic Times / Land & Saga hefur gaman að glíma við þessa birtu nú um vetrarsólstöður, þegar varla birtir, en samt, klukkan hálf tvö er bjart, þegar það er bjart.

Bertel Thorvaldsen (1770 -1844) sjálfsmynd með framtíðargyðjuninni í Hljómskálagarðinum
Ráðhús Reykjavíkur og Hallgrímskirkja
Ljós og skuggar á skrifstofur Alþingis
Alþingismaður í Alþingishúsinu
Harpa í hádeginu
Dómkirkjan og Alþingishúsið baðað hádegissólinni
Strá í Reykjavíkurtjörn
Tré í Tjörninni
Ferðamaður ritaði kveðju í Hljómskálagarðinum

Ljósmyndir / Texti : Páll Stefánsson

Reykjavík : 16/12/2025 – GFX 100 II : GF 1.7/55mm