Laugardagskvöld í Reykjavík. Þegar ég gekk niður í miðbæ Reykjavíkur klukkan níu á laugardagskvöldi, með þrífót, eina myndavél með 50mm linsu, vissi ég ekki hverju ég átti von á. Þetta var óvissuferð, að mynda það sem fyrir augu bar. Auðvitað var stemning, fólk að syngja, skemmta sér, ganga milli skemmtistaða, hitta mann og annan. Fá sér pylsu, eða bjór. Fimm tímum síðar, eftir að hafa myndað stemminguna, þar sem ég hafði stillt myndavélina á svarthvítt og formatið á 1:1, var eitt sem stóð uppúr. Reykjavík er ekki bara skemmtileg, heldur örugg borg, þar sem ferðamenn og innfæddir geta gert sér glaðan dag, án þess að lenda í hremmingum. Það er gott.









Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Reykjavík 11/10/2025 – A7C R : FE 1.2/50mm GM



