… að allir séu óhultir

Opnun 17. júní í Safnahúsinu

Verið velkomin á opnun sýningarinnar … að allir séu óhultir en þar sýna börn frá Grindavík á aldrinum 10 – 12 ára afrakstur sinn af myndlistarnámskeiði sem Listasafn Íslands í samstarfi við umboðsmann barna bauð uppá.

Á námskeiðinu var unnið út frá reynslu barna frá Grindavík sem þurftu að flýja heimili sín 10. nóvember s.l. Á sýningunni verður einnig sýndur hluti gagna frá þingi sem umboðsmaður barna hélt með börnum frá Grindavík í byrjun mars.

RELATED LOCAL SERVICES

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0