Velkomin á opnun nýrrar sýningar í BERG Contemporary, “Við hringjum inn…” – sem opnar laugardaginn 9. desember klukkan 15-17. Sýningin myndar yfirgripsmikla heild verka eftir fjölbreyttan hóp nokkurra listamanna gallerísins og gesta, þar sem minni verk í eigulegum stærðum og ýmsum miðlum verða í fyrirrúmi. Málverk, ljósmyndaverk, lágmyndir úr plexigleri eða gifsi, vatnslitaverk og svo mætti lengi áfram telja.
Listamenn:
Bjarni H. Þórarinsson
Dodda Maggý
Finnbogi Pétursson
Goddur
Haraldur Jónsson
Hulda Stefánsdóttir
Katrín Elvarsdóttir
Páll Haukur
Rósa Gísladóttir
Sigurður Guðjónsson
Steina Vasulka
Þórdís Erla Zoëga
Verið öll velkomin.