Ljósmynd: Elina Brotherus, Orange Event, 2017. Úr myndaröðinni Règle du Jeu / Leikreglur
Elina Brotherus (f. 1972 í Finnlandi) fæst að mestu við gerð sjálfsmynda og landslagsmynda. Í verkum Elinu má skynja sterka nálægð hennar sjálfrar en hún kemur fyrir í öllum ljósmynda- og vídeóverkum sýningarinnar, berskjölduð og hispurslaus. Verkin eru unnin á árunum 2016-2017 og einkennast af marglaga frásögnum sem sveiflast á milli kímni og trega. Í mörgum þeirra setur Elina sér leikreglur og fer eftir þeim innan ramma myndavélarinnar, sem er í senn leikfélagi hennar og sálarspegill. Verk Elinu vöktu snemma athygli vegna nálgunar hennar á notkun ljósmiðla til endurspeglunar á tilfinningalífinu og leikriti hins daglega lífs. Hún kannar persónulegar en í senn sammannlegar upplifanir, sjálfsmyndina, tímahugtakið, nærveru og fjarveru ástarinnar. Elina Brotherus nam ljósmyndun í Helsinki og býr í Finnlandi og Frakklandi. Hún hóf að sýna verk sín í lok 10. áratugarins sem hluti af hinum þekkta Helsinki School hópi ljósmyndara í Finnlandi og hafa verk hennar síðan verið sýnd víða, s.s. í Centre Pompidou í París; Neue Berliner Kunstverein í Berlín; Þjóðarlistasafni Finnlands Ateneum í Helsinki og Louisiana nútímalistasafninu í Danmörku. Verk Elinu voru sýnd í i8 Gallery í Reykjavík árið 2000 og á samsýningu í Gerðarsafni í Kópavogi árið 2006. Sýningarstjóri: Birta Guðjónsdóttir Sýningin er á dagskrá Ljósmyndahátíðar Íslands 2018SÝNINGAROPNUN Í LISTASAFNI ÍSLANDS FÖSTUDAGINN 16. FEBRÚAR KL. 20 —FRÍKIRKJUVEGI 7
Listasafn Íslands, Fríkirkjuveki 7 101 Reykjavík
+354 515 9600
16. febrúar 2018 kl. 20