Hafnarhús – Er þetta list?

Skemmtikvöld í Hafnarhúsi – Er þetta list?
30. nóvember 2023 kl 20:00-21:00

Fræðslu- og skemmtikvöld um samtímalist á Fimmtudaginn langa!
Samtal og notaleg kvöldstund með kaffihúsastemmingu og léttum veitingum.

Lendir þú stundum í því að klóra þér í kollinum á listsýningum?
Eða stígur þú helst ekki fæti inn á listasafn?
Þá er þetta viðburðurinn fyrir þig!
Tekið verður á vangaveltum eins og: „Það sem fólki dettur í hug!“, „Ég hefði getað gert þetta!“ og síðast en ekki síst „Er þetta list?“

Markmið kvöldsins er að auðvelda gestum að njóta myndlistar á eigin forsendum þar sem kafað er á bak við mögulegar ástæður fyrir því af hverju myndlist samtímans er eins og hún er.
Dæmi eru tekin af þeim sýningum sem uppi eru og um listaverk sem hafa vakið umtal og undrun á síðustu árum.
Gestgjafar á skemmtikvöldi eru Markús Þór Andrésson, deildarstjóri sýninga og miðlunar og Halla Margrét Jóhannesdóttir, verkefnastjóri miðlunar.

Athugið takmarkað sætaframboð.
Verð: 4.900 kr.
Verð fyrir þau sem eiga Árskort Listasafns Reykjavíkur eða Menningarkort Reykjavíkur: 3.750 kr.

Er þetta list? 30. nóvember: https://bit.ly/44YDaNP

RELATED LOCAL SERVICES