Gallerý Fold – Bergmál Entrópíu

Sýning Ómars Þórs Einarssonar Arasonar „Bergmál entrópíu“ opnar í Gallerí Fold laugardaginn 7. febrúar kl. 14. Sýningin stendur til laugardagsins 28. febrúar.

Ómar er nýfluttur heim til Íslands eftir margra ára dvöl í Bandaríkjunum. Þar stundaði hann myndlistarnám við Sacramento háskóla og lauk þaðan MA gráðu árið 2007. Síðar lauk hann MFA gráðu í myndlist við Stanford Háskóla. Í kjölfarið hóf Ómar kennslu við báða þessa háskóla þar sem hann kenndi bæði teikningu og málun til ársins 2023, eða þar til hann flutti aftur til Íslands.

Ómar hefur sýnt víðsvegar um Bandaríkin, bæði á einka- og samsýningum og hlotið margvíslega styrki og viðurkenningar fyrir störf sín þar vestra.

Þetta er fyrsta einkasýning Ómars í Gallerí Fold.

Dvöl hans í Bandaríkjunum hefur augljóslega sett mark sitt á listsköpun hans; vísanir í sjónmenningu og sögu frá Vesturheimi birtast gjarnan á myndfletinum. Þar fléttast kjarnorkuvá og stríðsógn saman við tilhugalíf og sálfræðikenningar með skemmtilega súrrealískri niðurstöðu.

Sýningin opnar laugardaginn 7. febrúar kl. 14

Sýningunni lýkur laugardaginn 28. febrúar

Opið er í Gallerí Fold á Rauðarárstíg

mán-fös 12 – 18 og laugardaga 12 – 16

 

RELATED LOCAL SERVICES