Gull & Silfur

Gull & Silfur hefur í meira en 50 ár verið í eigu sömu fjölskyldunnar og í þrjár kynslóðir gullsmíðameistara. 

Sigurður G. Steinþórsson gullsmíðameistari, sem lærði listina af föður sínum Steinþóri Sæmundssyni, er stofnandi fyrirtækisins og hefur starfað þar alla sína tíð ásamt konu sinni Kristjönu Ólafsdóttur verslunarstjóra. Sólborg S. Sigurðardóttir gullsmíðameistari hefur unnið við hlið föður síns síðan 2005 og eru þau kjarni starfseminnar í dag.

„Listræni andinn sveipar reksturinn daglegum ljóma. Í hverjum grip mótar fyrir listrænu handbragði og verklagi sem hefur fylgt okkur í gegnum tíðina. „Við teljum öruggt að handverkið okkar, þjónustan og sú stefna að vera til staðar með einstaka þjónustu, hafi skilað sér í velvild á markaðnum sem og í tryggð þeirra þúsunda viðskiptavina sem við eigum allt að þakka. Án þeirra værum við ekki starfandi, segir Sigurður G. Steinþórsson“ aðspurður um velgengni fyrirtækisins.

RELATED LOCAL SERVICES