Kviksjá: Íslensk myndlist á 21. öld

Kviksjá: Íslensk myndlist á 21. öld

Á sýningunni Kviksjá: Íslensk myndlist á 21. öld  gefur að líta úrval af þeim verkum sem Listasafn Reykjavíkur hefur eignast síðustu tvo áratugi. Verkin gefa innsýn inn í þá breidd og þær áherslur sem hafa verið að mótast og gerjast í íslensku listalífi frá aldamótum 2000 til dagsins í dag.

Á sýningunni er að finna 24 listaverk úr safneigninni, eitt verk fyrir hvert ár frá 2000 til dagsins í dag. Sjá má verk eftir marga af fremstu samtímalistamönnum þjóðarinnar, viðamiklar innsetningar og umfangsminni verk. Verkin eru sumhver vel þekkt og vinsæl en nokkur hafa sjaldan verið sýnd og gætu komið safngestum á óvart.  Valinn verður einn listamaður fyrir hvert ár 21. aldarinnar og tekur sýningin  breytingum strax í haust  þegar  kviksjánni verður snúið og nokkur verk víkja fyrir öðrum, allt til þess gert  að sýningin verði fjölbreyttari og gaman verði að sækja safnið heim aftur og aftur.
Í ár fagnar Listasafn Reykjavíkur því að 50 ár eru liðin frá því að fyrsta aðsetur safnsins var formlega opnað á Kjarvalsstöðum. Í tilefni tímamótanna er áhersla lögð á safneignina og tækfærið nýtt til til þess að skoða og sýna gersemar sem þar eru varðveittar. Sýningin er sú þriðja í sýningarröðinni Kviksjá sem er liður í þeirri áherslu en á Kjarvalsstöðum stendur nú yfir sýningin Kviksjá: Íslensk myndlist á 20. öld  og fyrr á árinu var í Hafnarhúsinu sýningin Kviksjá erlendrar myndlistar.

Staður: Hafnarhús, Listasafn Reykjavíkur

Listamenn sem eiga verk á sýningunni:

Júní – Sept. 2023      
Ragnheiður Jónsdóttir
Rúrí
Þorvaldur Þorsteinsson
Ólafur Elíasson
Jón B.K. Ransú
Gabríela Friðriksdóttir
Birgir Andrésson
Ragnar Kjartansson
Gjörningaklúbburinn
Hlynur Hallsson
Spessi
Ólafur Sveinn Gíslason
Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Ásmundur Ásmundsson
Erla S. Haraldsdóttir
Arna Óttarsdóttir
Elín Hansdóttir
Einar Falur Ingólfsson
Rósa Gísladóttir
Margrét H. Blöndal
Haraldur Jónsson
Kristján Steingrímur Jónsson
Eggert Pétursson
Þórdís Erla Zoega
Sept-Jan. 2024
Gústav Geir Bollason
Steingrímur Eyfjörð
Shoplifter/Hrafnhildur Arnardóttir
Finnur Arnar Arnarson
Erling T.V. Klingenberg
Libia Castro & Ólafur Ólafsson
Hildur Bjarnadóttir
Olga Bergmann
Heimir Björgúlfsson
Helgi Þórsson
Katrín Sigurðardóttir
Guðrún Einarsdóttir
Ósk Vilhjálmsdóttir
Kristín Gunnlaugsdóttir
Hreinn Friðfinnson
Hildigunnur Birgisdóttir
Finnbogi Pétursson
Dodda Maggý
Eygló Harðardóttir
Ólöf Nordal
Kristján Guðmundsson
Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir
Sara Riel

RELATED LOCAL SERVICES