hjkggl
Á 100 ára fullveldisafmæli Íslands stendur Þjóðminjasafn Íslands fyrir sérstakri dagskrá á sýningum safnsins á Suðurgötu. Valinkunnir einstaklingar, sem þekktir eru fyrir störf sín í þágu samfélagsins, veita leiðsögn og ræða við safngesti um hugðarefni sín. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ríður á vaðið og gengur með gestum um Þjóðminjasafnið með leiðsögn undir yfirskriftinni Galdrar, glæpir og glæfrakvendi. Leiðsögnin verður sunnudaginn 11. febrúar kl. 14. Verið öll velkomin, ókeypis aðgangur fyrir gesti leiðsagnarinnar.Galdrar, glæpir og glæfrakvendi
Þjóðminjasafn Íslands. Suðurgata 41 101 Reykjavík
+354 530 2200
11. febrúar 2018 kl. 14:00
iframe code