Sýningaropnun: Heildin er alltaf minni en hlutar hennar

Verk af sýningunni Heildin er alltaf minni en hlutar hennar

Sýningaropnun í D-sal − Páll Haukur Björnsson:
Heildin er alltaf minni en hlutar hennar
Fimmtudag 25. janúar kl. 17.00 í Hafnarhúsi

Sýningin Heildin er alltaf minni en hlutar hennar eftir Pál Hauk Björnsson opnar fimmtudaginn 25. janúar kl. 17.00 í D-sal, Hafnarhúsi. Páll Haukur er 32. listamaðurinn sem sýnir í sýningaröð D-salar sem hóf göngu sína árið 2007.

Einhverskonar landslag er að finna á sýningunni, mótað af mismunandi skúlptúrum. En hvað er skúlptúr? Hvað myndar mörk staks hlutar og samband hans við annað?

Páll Haukur hefur áhuga á því að skoða þessar spurningar í gegnum skúlptúrgerð. Hann notar kyrr- og hreyfimyndir, hluti sem eru hverfulir, oftast úr náttúrunni, og varanleg, manngerð efni.

Páll Haukur nálgast efnivið sinn með því að rekja upp og færa úr skorðum skilgreinda merkingu sem hlutirnir hafa öðlast. Hann skoðar mörk lífleysis þeirra í leit að tengslum eða andstöðu. Hann hagræðir hlutum og færir þá frá hversdagsleika þeirra, og kemur þeim þannig fyrir að eigindleiki þeirra verður óljós. Hlutinn er áminning um breytingar sem greinast ekki í augnablikinu en óma engu að síður í ólýsanlegum en auðþekkjanlegum stað í tungumálinu.

Páll Haukur Björnsson (1981) útskrifaðist með BFA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2008 og lauk meistaragráðu frá California Institute of the Arts árið 2013. Hann hefur sýnt verk og gjörninga víða, á einka- og samsýningum á Íslandi, í Bandaríkjunum og Evrópu. Páll Haukur býr og starfar í Reykjavík. 

Markmið sýningarraðirnnar í D-sal er að gefa efnilegum listamönnum tækifæri til að vinna í fyrsta sinn að einkasýningu í opinberu listasafni og beina athygli gesta að nýjum og áhugaverðum hræringum innan listheimsins.

Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsi, Tryggvagötu 17 101 Reykjavík

+354 411 6400

[email protected]

listasafnreykjavikur.is


25. janúar kl 17:00


CATEGORIES

NEARBY SERVICES

  • Best of Iceland

    Best of Iceland
  • Related Articles

      WAITING ROOM í Harbinger.

      WAITING ROOM í Harbinger.

      Laugardaginn 24. apríl á milli kl. 2 og 6 opnar sýningin WAITING ROOM í Harbinger. Sýningin stendur til 9. maí og er ...
      Listasafn Íslands

      GÆÐASTUNDIR Í LISTASAFNI ÍSLANDS 2018

      GÆÐASTUNDIR Í LISTASAFNI ÍSLANDS 2018

      Frábært tækifæri til þess að kynnast íslenskri myndlist! Gæðastundir í Listasafni Íslands eru leiðsagnir og viðburðir í...
      Uppruni Lopapeysunnar

      Uppruni, saga og hönnun íslensku lopapeysunnar

      Uppruni, saga og hönnun íslensku lopapeysunnar

      Uppruni, saga og hönnun íslensku lopapeysunnar í máli og myndum Hádegisfyrirlestur Þjóðminjasafns Íslands   ...

      Bakgarðar

      Bakgarðar

      Bakgarðar 27.3.2021-29.8.2021 Bakgarðar, skúrar, þvottasnúrur og einstaka köttur. Ljósmyndarinn Kristján Magnússon s...