Margrét Elíasdóttir

 

Eg fæddist á Blönduósi,en hef aldrei komið þangað síðan. Alveg frá fæðingu hefur verið mikill flækingur á mér,“ segir Margrét. „Ég hef búið hér og þar á landinu hjá ættingjum og vinum. Samanlagt hef ég búið lengst í Reykjavík. Fjölskyldan mín er öll frá Hnífsdal, en þangað hef ég aldrei komið. Sextán ára fór ég burt af landinu og hef ekki verið heima utan þau fjögur ár sem ég var í Myndlista— og handíðaskólanum. Það eru kannski  afleiðingar af þessum þvælingi að ég hef enga þörf fyrir ytra öryggi eða staðfestu og get aðlagast öllum stöðum. Ég held mér hafi ekki leiðst nema á tveimur stöðum. Sjá meira hér í Morgunblaðinu frá ágúst 1987

Margrét Elíasdóttir sýnir í nýju galleríi
SÝNING á olíumyndum Margrétar Elíasdóttur stendur nú yfir í Jera galleríi, Miklubraut 68. Sýningin ber nafnið „allsnægtir“. Á sýningunni gerir listamaðurinn tilraun til að fanga tilfinningu yfirflæðis. Verk Margrétar eru yfirleitt andlegs eðlis og dramatísk en hér nálgast hún sama málefni út frá hversdagslegri viðfangsefnum.
Margrét útskrifaðist frá Konstfack-listaháskólanum í Stokkhólmi 1974 og hefur haldið 9 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hér á landi og erlendis. Sjá meira hér

Forsíðan
Myndin er af málverki Margrétar Elíasdóttur og heitir „Fjallkonan og mosinn hennar“. Þetta er ein af þeim myndum, sem Margrét sýndi á Kjarvalsstöðum í ágúst (1987), en vegna þess að hlé varð á útkomu Lesbókar í sumar, var ekki hægt að fjalla um sýningu Margrétar. Hún hefur margt reynt þótt ung sé og ferðast víða, en býr nú og starfar í Stokkhólmi. Margrét vakti verulega athygli með þessari sýningu, ekki sízt fyrir hugmyndaflug og færni í teikningu, en um leið er þróunin hjá henni dæmigerð fyrir marga, sem leita nú að útgönguleiðum frá grófleika nýja málverksins.  Sjá meira hér

iframe code

NEARBY SERVICES

  • Best of Iceland

    Best of Iceland
  • Related Articles

      GUNNLAUGUR SCHEVING 1904 – 1972

      GUNNLAUGUR SCHEVING 1904 – 1972

      GUNNLAUGUR SCHEVING  1904 – 1972 Myndirnar á þessari síðu( sjá verk hér að ofan) sýna 5 stig í þróunarsögu eins af má...

      Karl Kvaran 1924 – 1989

      Karl Kvaran 1924 – 1989

      Karl Kvaran 1924 - 1989 Karl Kvaran er i hópi okkar bestu abstraktmálara, á þvi leikur naumast neinn vafi. Hann er 54...

      Margrét Eddudóttir

      Margrét Eddudóttir

      Úr myrkri Margrét Eddudóttir Sýningaropnun laugardaginn 6. ágúst kl. 13. Öll velkomin. Verið velkomin á einkasýnin...

      Jana Birta Björnsdóttir – Meira en þúsund orð

      Jana Birta Björnsdóttir – Meira en þúsund orð

      Verið velkomin á opnun sýningarinnar Meira en þúsund orð sem er sýning á verkum Jönu Birtu Björnsdóttur og er hluti af l...