Listasafn Reykjavíkur – EVE Online útilistaverk afhjúpað

Útilistaverk eftir Sigurð Guðmundsson afhjúpað
eftir endurbætur á 20 ára afmæli EVE Online
Víkin, Grandagarði

21. september kl 13:00 var EVE Online útilistaverkið Heimar í heimi eftir Sigurð Guðmundsson afhjúpað við hátíðlega athöfn úti á Granda þar sem höfuðstöðvar CCP var áður að finna.
Verkið var tekið niður tímabundið þar sem unnið var að endurbótum á því.

Verkið er staðsett við Víkina, Grandagarði og samanstendur af einföldum formum sem unnin eru í granít, stál, steypu og ál. Verkið, sem er fimm metra hátt er unnið að frumkvæði tölvufyrirtækisins CCP og gefið Reykjavíkurborg í tilefni tíu ára afmælis fyrirtækisins og er því í safneign Listasafns Reykjavíkur. Nöfn hundruð þúsunda spilara tölvuleiksins EVE Online eru rituð með örsmáu letri í álplötur sem þekja grunn verksins og var hluti af endurbótunum að bæta við nöfnum á álplöturnar.
Þrír skúlptúrar standa á grunnstöpli með nafnaáletrununum og minni stöpli undir verkinu sjálfu. Verkið er hálfhlutbundið með tilvísun í höfuð eða í myndlistarmanninn sjálfan og þar af leiðandi bein tilvísun í eldri verk Sigurðar. Glerveggurinn er hugsaður sem spegill milli heimanna tveggja, raunheima og sýndarveruleikans. Heimarnir tveir spegla hvor annan og að sögn listamannsins sjálfs speglar spegillinn líka hinn stóra heim. Höfuðið er ávalt en sýndarveruleikinn byggist á skörpum línum.

RELATED LOCAL SERVICES