Sara Vilbergsdóttir — Já Þó!

Sara Vilbergsdóttir — Já Þó!

Listhús Ófeigs, Skólavörðustígur 5

Opnun: laugardag 30. ágúst kl. 14:00

Listakonan Sara Vilbergsdóttir opnar sýninguna Já Þó! í Listhúsi Ófeigs. Þar sýnir hún málverk, útsaumsmyndir og pappamassaverk sem draga upp fígúratívar stemmur úr daglegu lífi og tilfinningalífi mannsins.

Sara hefur starfað að list sinni í yfir 30 ár og sýnt víða bæði hérlendis og erlendis. Hún hefur jafnframt kennt málun, blandaða tækni og pappamassagerð við Myndlistarskóla Kópavogs, Ljósinu og á fjölmörgum námskeiðum innanlands og utan.

Sýningin stendur til 24. september.

Opið virka daga kl. 10–18 og laugardaga kl. 11–16.

Sýningarstjóri: Viðar Hákon Söruson.

sími: 354-895 2001

RELATED LOCAL SERVICES