Sigurður Sigurðsson
Sigurður ólst upp á Ísafirði og síðar á Sauðárkróki. Hann var stúdent frá MA 1937 og lauk cand. phil. prófi frá Háskóla Íslands 1938. Sigurður stundaði nám við Konunglega Listaháskólann í Kaupmannahöfn 1939 – 1945. Eftir að hann kom heim frá námi hóf hann kennslu við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1948 og starfaði þar samfleytt til ársins 1980. Hann var yfirkennari skólans um árabil. Sigurður hélt margar einkasýningar og tók þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis. Hann sýndi verk sín m.a. í Danmörku, Noregi, Finnlandi, Ítalíu, Þýskalandi, Póllandi og Rússlandi. Sigurður hélt alla tíð tryggð við sígilda landslagshefð í verkum sínum og var einn merkasti portrettmálari hérlendis. Hann var form. Félags íslenskra myndlistarmanna í áratug og var gerður að heiðursfélaga sama félags. Sigurður sat í stjórn Lista- og menningarsjóðs Kópavogs frá stofnun hans 1965 til ársins 1981.
Sjá fleiri greinar um myndlistamenn sjá hér