Steinunn Sigurðardóttir er íslenskur fatahönnuður. Hún stundaði nám við listaháskóla í París og New York og lauk prófi frá Parson School of Design. Hún starfaði um árabil við tísku- og fatahönnun hjá erlendum tískuhönnuðum en stofnaði árið 2000 fyrirtækið STEiNUNN og opnaði verslun sem núna er við Grandagarð í Reykjavík. Steinunn hlaut hönnunarverðlaun Torsten och Wanja Söderberg-verðlaunin árið 2008. Hún var borgarlistamaður Reykjavíkur 2009.
![](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=768,height=512,/wp-content/uploads/2023/12/8b5ca23afa344933.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)